Innheimtuþjónusta

JURIS innheimtuþjónusta býður upp á markvissa innheimtuþjónustu sem byggir á verkferlum, settum markmiðum og innheimtumati. Viðskiptavinum eru gefnar reglulega skýrslur þar sem árangurinn er mældur út frá gefnum markmiðum.

Lögð er áhersla á fullkomnustu tækni hverju sinni, þ.m.t. beintenginu við bankakerfi og rafrænan aðgang að gagnaskrám.

Markmið

- Að krafa sé skráð og innheimtubréf sent innan 2ja virkra daga frá móttöku.
- Að önnur tímamörk í ferlinu séu í samræmi við sett markmið.
- Að útlagður kostnaður sé ávallt í lágmarki.
- Að ónýtar kröfur eru endursendar um hæl.
- Að lækka meðaltalsvanskilatíma krafna.
- Að halda veltuhraða krafna í lágmarki.

Innheimtuferlið

1. Skráning innheimtukröfu.
2. Greiðsluáskorun.
3. Málssókn.
4. Fjárnám.
5. Uppboð.
6. Gjaldþrot.
7. Afskriftir.
8. Skýrsla og innheimtumat.

Opnunartími stofunnar er 8-12 og 13-17. Sumaropnun er frá 8-12 og 13-16.

innheimta@juris.is

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli